Sælt veri fólkið….. og takk fyrir afmælisóskirnar.
Afmælisdagurinn var bara ágætur, þó að ég var pínu þunn. Daginn áður fékk ég loksins leyfi til að flytja í nýja íbúð þannig að ég fór ,,snemma” á fætur og flutti inn til Hönnu. Svo fékk þá ánægju að fara í vinnuna fram eftir nóttu:-) Ég fékk líka pakka frá mömmu og nönnu með smá glaðningi í!!! Það er alltaf gaman.
Annars er voðalega lítið að frétta af mér. Ég er bara búin að vera á fullu í vinnunni og í skólanum……. á mánudaginn fer ég svo aftur í þjálfun, í þetta skipti fyrir concierge.
Mér líkar bara ágætlega vel í vinnunni, fólkið sem ég er að vinna með er flest allt yndislegt og starfið er skemmtilegt.
Eins og ég sagði þá hef ég ekkert að segja, vildi bara láta ykkur vita að ég er á lífi.
kossar og knús
Óskin