Gæti ekki verið ánægðari

17 02 2009

Ég fékk alveg æðislegar fréttir í dag:-) Ég náði öllum prófunum mínum sem þýðir það að ég get haldið áfram í skólanum og vinir mínir í LÍN lána mér smápening….. Ég er búin að kvíða fyrir þessum degi síðan ég kom hingað og þegar ég sá E-mail frá skólanum mínum vildi ég varla opna það!!!! En allt gékk vel.
Það sem kom mér mest á óvart voru prófin sem ég tók á meðan ég var veik. Þannig er mál með vöxtum að tvö síðustu prófin voru á mánudegi og þriðjudegi og helgina fyrir tókst mér ekki betur en að fá þennan líka svakalega magavírus…… með honum fylgdi hiti og aumingjapestin sem þýddi að ég gat varla lært. En það heppnaðist ekki betur en ég fékk 90% og 95% í þessum prófum. Meðaleinkun mín þessa önn er 85% og ég er nokkuð viss um að þetta er hæsta meðaleinkunin mín síðan í grunnskóla.

En nóg með það….. ég hef fleiri góðar fréttir. Helga Dögg eignaðist prinsessuna sína í síðustu viku. Loksins fjölgaði aðeins í fjölskyldunni minni!!!! Ég er bara búin að sjá myndir af henni en hún er algjör dúlla og það er ssssvvvvvoooooooo augljóst að hún er dóttir hennar Helgu Daggar:-)

Svo fékk ég að vita það að Ida, herbergisfélagi minn í IHTTI, getur fengið mig í heimsókn……. til Cancun!!!!! YEAH, I AM GOING TO CANCUN!!!!!!!
Hanna, íslenska stelpan hér, á afmæli í byrjun mars þannig að við ætlum að splæsa flugi á okkur í afmælisgjöf:-) Stuð Stuð Stuð….

Af einhverri ástæðu þá er ég ekki búin að taka eina einustu mynd síðan ég kom hingað…. ég held að það er eitthvað að mér!!!! En ég lofa að laga það og setja myndir inn á facebook og á bloggið. Ég er bara búin að vera á fullu í þjálfun og á miðvikudaginn er síðasti dagurinn minn með þjálfara við hliðina á mér og eftir það verð ég ein á kassanum. Svo eftir ca. 3 vikur fer ég í þjálfun fyrir concierge.

En ég ferð að kveðja núna því Hanna var að hringa og ég átti að vera komin til hennar í bjór fyrir langa löngu

kossar og knús frá sólinni.

Óskin

Advertisement

Actions

Information

Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s




Follow

Get every new post delivered to your Inbox.