úúúúúúúpppppppssssssss, búin að vera SVOLDIÐ löt að blogga síðan á síðasta ári. ég biðst afsökunar á því. En hér koma fréttir af mér….
Í byrjun janúar fór ég aftur til Neuchatel til að klára önnina. Þar tók ég lokaprófin og skemmti mér með vinunum áður en við færum í burtu í marga mánuðin. Það var alveg ógeðslega erfitt að segja bæ við þau….. og mig hlakkar geðveikt til að sjá þau aftur í september.
EN eftir langt ferðalag, þar á meðal tvær nætur í London, þá er ég loksins til Orlando. Ég þurfti að stoppa í Atlanda og ég fékk bara klukkutíma á milli fluga til að koma mér í gegnum tollinn og komast í aðra flughöfn. Það munaði ekki miklu að ég missti af vélinni. Þegar ég kom þangað sem á að búa þurfti ég að skrá mig inn í íbúðina og bíða svo í heillangan tíma að komast inn í hana. Málið er að hér eru 4 ,,hverfi” sem starfsmenn Disney búa í og þau eru ekki það nálægt hvor öðru. Í þessum hverfum búa rétt tæplega 7.200 manns!!!!! Það er ekkert smá mikill fjöldi og meirihlutinn er frá Kína og spænsku mælandi landi. Ég hef 3 herbergisfélaga, 2 frá Kína og 1 frá Belize (veit ekki íslenska nafnið) og þær eru að gera mig gráhærða. Ég ætla að biðja um flutning því ég get ekki búið með þessum stelpum í 6 mánuði……
Ég kynntist íslenskri stelpu hér og hún er einnig að læra í Sviss. Það er æðislegt að geta talað íslensku aftur, þá er líka minni líkur á því að fólk geri grín af mér þegar ég kem heim með hræðilega íslensku.
Fyrstu dagarnir hér voru fullir af námskeiðum og þjálfun. Ég þurfti að skrá mig í skólann, kynnast kennurum, læra á vinnuna, kynnast Disney betur og koma mér fyrir hér. Á morgun er alvöru fyrsti vinnudagurinn minn, hingað til er ég bara búin að vera inni í skólastofum að læra á tölvukerfi og fleira. Ég á að vinna á All Star resorts, það eru 3 all star resorts: Movies, Music og Sport. ég mun svo hoppa á milli hótelanna.
Ég fékk góðar fréttir í dag…… Helga Dögg eignaðist litla prinsessu í dag:-) Sem þýðir að ég er orðin frænka!!!! En ég held að engin hafi haft rétt fyrir sér með fæðingardaginn….. ég veðjaði á 18. febrúar.
Ég er búin að vera á fullu að gera ekki neitt siðustu 2 vikur þannig að það er ekki mikið sem ég get sagt ykkur. En ég LOFA að láta ekki líða mánuð áður en ég blogga aftur.
kossar og knús
Óskin