Senn koma jólin

16 12 2008

Ég vil nú bara biðjast afsökunar á bloggleysinu mínu…. ég er bara búin að vera á fullu í skólanum og reyna að missa ekki vitið:-)
Stærsta frétti héðan er að ég kem heim eftir 3 DAGA!!!!!!! Vá hvað mig hlakkar til:-) Ég er að alveg að ,,fíla” mig í þessum skóla og þessu námi en að búa, borða, fara í tíma og læra með sama fólkinu alla daga í marga mánuði getur gert mann gráhærðan…… en ég tek þessu öllu með ZEN.

Í endanum á nóvember fórum við í skólaferð til Interlaken og sáum einhverja glerverksmiðju. Jú, þetta var merkilegt en 10 tíma ferðalag sem samanstóð af rútuferð, verksmiðju og ísjökulkuldai er ekki eitthvað sem ég kalla skemmtilegur uppæifun….. og það versta var að við þurftum að vera í skólaklæðnaðinum sem samanstendur af sokkabuxum, pils, skyrtu og svörtum lágum skóm. En ég lifði þetta af:-)

Í síðustu viku fór ég svo í bandaríska sendiráðið í Bern til að fá vegabrefsáritun fyrir Orlando. Við fórum 3 stelpur úr skólanum og þar sem við áttum viðtalstíma klukkan 10:30 þá vorum við komnar þangað um tíu leytið. Eftir 2 öryggisskoðanir biðum við inni í pínulitlu herbergi með 30 manns í 3 tíma!!!!! Þegar við vorum LOKSINS búnar þar inni vorum við svo svangar og það fyrsta sem við sáum var Burger King….. ég get með sanni sagt að borgararnir þar eru EKKI góðir.

Ég fór í próf í Cost Control (bein þýðing er kostnaðar áætlun) í síðustu viku og ég fékk 100 % í því prófi….. okey, eg monta mig af því en sannleikurinn er sá að þetta próf var svo létt að 5 manns fengu 100% og flest allir fengu á milli 80 og 96% en það voru sumir sem féllu.

Ég er búin að versla flest allar jólagjafirnar, en á morgun fer ég í búðir til að klára þetta áður en ég kem heim.

Ég er búin að fara nokkrum sinnum á djammið þessa önnina og nú ætla ég að taka pásu frá vodka-red bull….. ég held að líkaminn minn taki ekki meira af þessum bölvaða drykk. En hann er samt góður:-) hehehehehehe

Annars er voðalega lítið að frétta af mér…… næst þegar þið heyrið í mér þá verð ég komin heim á klakann. Ef ég sé ykkur ekki þá segi ég bara gleðileg jól og farsælt komandi ár

Hátíðarkveðjur
Óskin

Advertisement

Actions

Information

One response

26 01 2009
Kolla

Ósk.. það er kominn mánuður síðan þú bloggaðir síðast!! Við viljum fá fréttir!! heheh… ég er bara að grínast! Hvernig var í London??

Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s




Follow

Get every new post delivered to your Inbox.