fjúff…. ég lifði það af

8 11 2008

Heeelllllóóó

vá hvað það er gott að það sé komin helgin….. það þýðir nefnilega að ég lifði af miðannarprófin. Síðasta prófið mitt var Wine&BAr Knowlegde i gær og það var ekkert smá erfitt!!! Allir komu út skellihlægjandi því enginn hafði hugmynd um hvað kennararinn var að tala um. Mikið var um þreytu í skólanum en það stoppaði samt ekki fólk til að detta rækilega í það. Ég var samt gáfuð og horfði bara á bíómyndir allt kvöldið, fyrst á dagskrá var P.S. I Love You (allir voru hágrátandi yfir henni) og svo var það Wanted (Aðeins meira spenna en fyrri myndin). Í dag ætla ég bara að taka það rólega og njóta þess að gera EKKI neitt, en ef ég þekki mig rétt þá fer mér að leiðast þegar kvöldatekur.

Ég hef fengið nokkrar spurningar um Orlando. Ég fer þangað í endann á janúar 2009, því miður kem ég ekki heim í millitíðinni. Ég get því miður ekki boðið upp á gistingu þar sem ég mun búa því það er lokað fyrir gesti. EN ég fæ 50% afslátt af gistingu hjá disney fyrir vini og vandamenn auk fría miða inn í garðinn. Þannig að það er eitthvað í boði ef fólk kemur að heimsækja mig:-)

Annars er ekki mikið meira í fréttum
Ég bið að heilsa öllum heima á klakanum
Bara 6 vikur þar til ég kem heim:-)
kossar og knús
Óskin

Advertisement

Actions

Information

Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s




Follow

Get every new post delivered to your Inbox.