Seint blogga sumir, en blogga þó…

1 11 2008

Hæ hæ elskurnar mínar….

Ég biðst afsökunar á því að ég er ekki búin að blogga í þónokkurn tíma. Það er samt ekki mikið búið að gerast síðan síðast…..
Þetta kemur örugglega ekki á óvart en mér tókst að slasa mig eina ferðina enn, í þetta skipti gerði ég eitthvað við liðbandið í langaputta og þurfti að vera með spelku í viku.

Það var svo yndislegt að vera ein heima á meðan Ida fór til Finnlands. Tónlistin var í botni, alltaf opið inn á baðherbergi og ég gat gert hvað sem ég vildi…. eða svona næstum því:-) En litla barnið inni í mér þorði ekki að sofa með slökkt ljósið á meðan hún var í burtu, hehehehehe, þannig að ég skildi eftir ljós á ganginum.

Ég fór á McDonalds um daginn og þeir eru með risaskjá sem er alltaf stilltur á íþróttir. Á meðan ég var í röðinni leit ég upp á skjáinn og viti menn, var ekki barasta íslenska kvennaliðið okkar að spila við íra (ég held það allavegna). Vá, það virðist vera allveg SVAKALEGA kalt heima… ekki öfuna ég ykkur:-) Hér verður samt kaldara með hverjum deginum og um daginn kom smá slydda. Vinkona mín sem er frá Indónesíu var allveg gagntekin af þessu hvíta sem kom af ofan, hún hefur nebbla aldrei séð snjó áður.

Hluti af skólanáminu er að fara í starfsnám í 4-6 mánuði og ég er að fara til Disney í Orlando. Ég fékk vinnu þar sem Lobby Concierge, er ekki alveg viss um hvað það er en það á víst að vera mjög skemmtileg vinna. Ég fer þangað þegar skólanum líkur í janúar og verð þar fram til ágúst. Það verður spennandi að athuga hvernig þetta starf verður.

Í gær var svo halloween og flest allir klæddu sig í galla og drukku fram á rauða nótt. Þannig er mál með vöxtum að allir árgangarnir þurftu að skila heldur stóru verkefni í gær og svo byrja prófin fljótlega þannig að við tókum eitt kvöld til að ,,chilla” eins og sagt er á góðri íslensku:-) Ég klæddi mig upp sem norn og ég get nú sagt að ég var heldur ofríð og hræðileg norn. Ég mun allavegna ekki setja mynd af mér inn:-)

En nú ætla ég að kveðja í bili
kossar og knús
Óskin


Actions

Information

One response

2 11 2008
Nanna

Osk!!!! Ætlarðu að flytja til bandarikjanna…. jii minn eini það er aldeilis. Eins gott að við hittumst heima i næsta manuði :)
Ef fri gisting er i boði er aldrei að vita nema ferð til orlando það verði sett fyrir fjarlaganefnd næsta ars ;)

Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s




Follow

Get every new post delivered to your Inbox.