Alltaf á fullri ferð

13 10 2008

Helló

Hvað er að frétta af klakanum??? Héðan er allt gott að frétta…… fyrir utan það að ég er alveg auralaus og þar sem allt er í hakki heima þá er ekki möguleiki fyrir mig að nota kortin mín:-) Maður getur ekki annað en hlegið í svona aðstæðum.

Á laugardaginn fyrir viku síðan átti Evelina afmælið og við hélduð Surprice veislu fyrir hana. Við vorum um 15 manns úr bekknum mínum og við keyptum gjöf og afmæliskleinuhring handa henni. Henni brá svo svakalega þegar hún kom inn í herbergið að hún hoppaði í loftið og klessti svo á vegginn. Það var svo fyndið:-)
Daginn eftir leigði ég og 8 aðrir krakkar tvo bíla og keyrðum til Luzern sem er í ca. 2 klukkutíma fjarlægð frá Neuchatel. Okkur tókst að villast aðeins í borgunni, fengum okkur pizzu og skelltum okkur svo á tónleika með finnskum hljómsveitum, Lapko og Disco Ensemble. Það besta við þessa ferð var að ég fékk að keyra og það var algjört stuð….. sérstaklega á hraðbrautinni. Ég var svoldið stressuð í byrjun en þegar ég var byrjuð að keyra á 140 þá fékk ég þvílíkt adrenalín-stuð.

Ég að keyra bílinn:-)

Kennararnir eru nú að fara að byrja á að henda á okkur verkefnum og prófum….. síðasta vika var heldur þung og það lítur út fyrir að þessi vika verður enn erfiðari. Eftir 2 vikur verða svo miðannarprófin og þá byrjar sko stuðið:-)

Núna um helgina var svo íþróttadagur á milli nokkurra skóla í Sviss og hann var haldin í Leysin uppi í Ölpunum. Á laugardaginn var því ræs klukkan 6 um morgunin, beint upp í rútu og ferðalagið hafið. Flest allir, þar á meðal ég, fóru á barinn kvöldið áður þannig að við hrutum í kór á leiðinni. Ég hef stundum sagt að Neuchatel er heldur lítill og þögull bær en Leysin er DAUÐUR bær!!!! Þar sem ég of nokkrir aðrir krakkar tókum ekki þátt i keppninni þá byrjuðum við á því að labba aðeins um bæinn, fengum okkur crépe og lékum svo cheerleaders fyrir skólann okkar. Eftir hádeigið fengum við svo tækifæri á því að fara á skauta.
Eins og venjulega þá tókst mér að slasa mig….. ég skil bara ekki hvernig mér tekst að slasa mig ALLTAF!!!!!!

Næstu helgi fer Ida, herbergisfélagi minn, heim til Finnlands í 4 daga og ég fæ að vera ein heima:-) hehehehehehe

Allavegna…….. nú þarf ég að fara og hitta F&M hópinn minn til að vinna í verkefni, JÍBBÍ!!!!


Actions

Information

Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s




Follow

Get every new post delivered to your Inbox.