Hæ elskurnar mínar
Ég skelli mér af klakanum í nokkra mánuði og allt verður skrítið!!!! Íslenska krónan fellur eins og ég veit ekki hvað og svo byrjar að snjóa…… í október!!!!!! Ég man ekki eftir snjó á þessum tíma árs síðan ég var pínulítil……. Það er þá eins gott að ég fái hvít jól:-)
Síðastu helgi var Fete de Vintage, vona svo innilega að ég sé að skrifa þetta rétt, en það er á góðri íslensku kallað vínhátíð. Þetta var ekkert annað en eitt stórt fyllerí. Ég var að vinna á laugardeginum þannig að ég tók það bara rólega á föstudeginum en svo var djöflinum leyst á laugardeginum og ég skemmti mér konunglega!!!! ,,Maðbærinn” var troðfullur og það var búið að setja upp fullt af básum sem seldi mat, áfengi, nammi, áfengi, dót eða áfengi…… Svo labbaði maður bara um, skellti sér í tívolíið sem var sett upp fyrir helgina og djammaði fram á rauðan morgun. Heilsan var ótrúlega góð á sunnudeginum, ég labbaði um bæinn, sá endann á hátíðinni, setti í þvottavél og náði upp heimalærdóminn sem ég setti á hakann fyrir helgina. Ég gerði ,,allt” þetta á meðan ég var að ganga í gegnum þynnkuna…..
Það er alveg ótrúlegt hvað tíminn liður hratt hér, mér finnst eins og það sé þriðjudagur en í rauninni er föstudagur og aftur komin helgi:-) Evelina, ein stelpa hér, á afmæli á morgun og í tilefni af því ætlum við að gera eitthvað skemmmtilegt og nýtt, vorum að spá í að skella okkur útúr bænum en þar sem hún er að vinna til 8 þá veit ég ekki hvort eitthvað verður úr því.
Svo á sunnudaginn ætla ég og hópur af krökkum að leigja tvo bíla, keyra til Lousanne, eyða þar deginum og fara svo á tónleika með finnskri hljómsveit um kvöldið….. Það verður örugglega mjög gaman!!!!
Af einhverji ástæðu fór ég að telja niður áðan og það eru AÐEINS 11 vikur þar til ég kem heim….. það þýðir líka að það bara 11 vkur og 5 dagar til jóla:-)
Meiri fréttir af mér seinna
kossar og knús
Óskin
Ohh… takk Ósk!! núna hlakkar mig geðveikt mikið til jólanna!!! heheh
og btw… herbergið þitt lítur geðveikt vel út, þetta er mjög flott!
Haalllóóó…. Fær mar engar nýjar fréttir!!!! BLOGGA, BLOGGA, BLOGGA, BLOGGA, BLOGGA, BLOGGA!!!!!!!!! Nei bara djók!! en mar væri alveg til í að fá að vita hvað er verið að gera þessa dagana! Er kreppan nokkuð að fara með þig þarna úti??