Sælt veri fólkið….
Ég skil bara ekki hvernig mér tekst alltaf að komast í ótrúlegustu aðstæður. Eins og ég sagði ykkur síðast þegar ég bloggaði þá er ég búin að vera hálf slöpp og kvefuð síðustu viku og svo missti ég alveg röddina um helgina. Ekki málið, ég tók það bara rólega, drakk mikið af heitu tei og var bara inni. Svo á mánudaginn var mér byrjað að líða betur og það sem var enn betra þá voru engin kennsla þann dag.
Seinni partinn ákvað ég og þrjár aðrar stelpur að skella okkur til Bern, við tókum lestina og vorum komnar þangað rúmlega 5. Við skoðuðum aðeins bæinn, fengum okkur ógeðslega góða pítsu og skelltum okkur svo í bíó á Mamma Mia. Bíóið var búið kl. 10.30 og við rétt misstum af lestinni til Neuchatel en sem betur fer átti ein lest að fara heim rétt fyrir miðnætti og það var síðasta lest kvöldsins. Við fengum okkur heitt kakó á McD á meðan við biðum og hoppuðum svo upp í lestina. Rétt áður en ég steig um borð spurði ég einn vörðinn hvort lestin væri ekki örugglega að fara til Neuchatel. ,, Ja, nach Neuchatel” var svarið sem ég fékk. Í lestinni spurði Lulu miðavörðinn hvort lestin færi til Neuchatel og hún fékk sama svar.
Þarna sátum við í sþónokkurn tíma og eftir 40 mín. ferðalag stoppar lestin, allir fara út og miðaverðirnir setjast niður og tala saman. Okkur fannst þetta eitthvað furðulegt þannig að við spurðum þá og þá kom þessi hryllingssvipur á þá og einn maðurinn segir að við áttum að skipta um lest á síðasta stoppi. Við vorum sem sagt fastar In The Middle Of Nowhere!!!! Það eina sem við gátum gert var að fara aftur til Bern og bíða eftir fyrstu lestinni morgunin eftir. Ekki mín hugmynd að skemmtun en það gerðum við. Við fundum bar sem var opin til 3:30 en eftir það þurftum við að sitja inni í lestarstöðin með hasshaus sem var alltaf að abbast upp á okkur og stórfurðulegum gaur sem labbaði í hringi. Það var ísjökulkuldi inn á stöðinni og nóttin ætlaði aldrei að líða.
Klukka 5.37 lagði svo blessaða lestin af stað til Neuchatel og við komum heim rétt fyrir morgunmat. Ég var ekki heppnari en svo að eftir þessa nótt var ég komin með bullandi hita og röddin farin aftur, ég var rekin upp i rúm og sagt að vera þar þennan dag.
Ég lærði það í þessari blessaðri ferð að taka ekki síðustu lest kvöldsins aftur.
En ég held að það sem drepur þig ekki gerir þig bara sterkari.
Ég var svo að fá pakka í dag frá mömmu, í honum var t.d. skórnir mínir:-) Fallegu skórnir sem ég var farin að sakna…..
Um helgina er svo Vínskemmtun hér í Neuchatel. Þetta er árlegur viðburður og er í stuttum orðum eitt stórt djamm!!!! Fólk í bænum er búið að vinna hörðum höndum að gera allt tilbúið fyrir helgina og nú er búið að setja upp risastór tjöld við vatnið, fyrirtæki sjá um þessi tjöld og þar er vín og bjór seld frá klukkan 6 í kvöld til miðnættist á sunnudaginn. Þetta er sem sagt tveggja sólarhringa drykkja.
En þar sem ég þarf að vinna í skólakaffeteríunni í fyrramálið þá ætla ég bara að taka það rólega í kvöld og fara frekar í bæinn eftir vinnu á morgun.
En meira um það seinna. Ég hef ekki meira að segja í þetta skipti.
kossar og knús til allra
Óskin
Ósk!!! Ég hélt að þú værir búin að ná því eftir heimferðina okkar frá Feneyjum að maður á ekki að taka síðustu lestina heim!!!!! hehe