Hæ hvað segist hjá fólkinu??
Nú er ég endalega búin með öll próf á þessu ári, lokaprófin í endann á önninni í janúar:-) Mér gékk bara ágætlega í prófunum, fyrir utan Wine&Bar.
Ég skil ekki akkuru helgar eru svona fljótar að líða… áður en maður veit af þá er komin mánudagur aftur:-( Mánudagur er ekki uppáhaldsdagurinn minn og kennararnir þurftu að rugla honum upp. Við vorum með svo góða stunda töflu…. bara einn tími á mánudögum og hann var klukka 4. En, NEI, þeir þurftu að breyta töflunni og setja tíma klukkan 8 á mánudagsmorgni!!!!! Ég er ekki ánægð með það en þetta er bara út nóvember… sem betur fer.
Helgin hjá mér var alveg æðisleg!!!!!! Á föstudaginn horfði ég og nokkrar stelpur á myndir, Dumb&Dumber og Hitman:-) Við skemmtum okkur alveg konunglega!!!!
Svo á laugardaginn fór ég, Ida, Monica, Veronica, Evelina og Debbie til Genf í smá stelpuferð. Við gistum á hostelli, versluðum, kíktum í bíó og skoðuðum borgina. Það besta við þessa ferð var að komast í burtu frá skólanum í smástund. Við fórum á Bond, James Bond í bíó og ég verð bara að segja að ég var ekki ánægð. Þeir slepptu Q, Miss Moneypenny, Vodka Martini shaken not stirred og öllu daðrinu á milli Bond og kvennanna!!!! Hvað er eiginlega málið??? Og það versta var að Bond sagði ekki ,, My names is Bond, James Bond” einu sinni í allri myndinni. Ég er ekki ánægð með nýja Bondin.
Stelpurnar drógum mig á Japanska veitingastað og ég verð bara að segja að það var mjög gott. Eina skiptið sem ég hef borðað Sushi áður var eitthvað sem pabbi keypti i Hagkaup og það er hundamatur miðað við þetta líka æðislega sushi sem ég fékk:-)
Við skelltum okku einnig á kínverskan stað… við ákváðum að hafa smá austrænan matseðil þessa helgi

Hér er hópmynd af okkur borða kínverska matinn:-)
Annars er voðalega lítið að frétta héðan í Sviss…
Læt heyra í mér fljótlega
kossar og knús
Óskin